Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma næst saman í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 25. mars kl. 12:00 og snæða saman.

Öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Skráning

Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 fimmtudaginn 21. mars.

Verð fyrir máltíðina er 3.000 kr. og mun afraksturinn renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Nýjar og áhugaverðar upplýsingar

Yfir hádegisverðinum mun Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar bera hópnum glænýjar fréttir af störfum Hjálparstarfsins í Malaví.

En einmitt þessa dagana er hann staddur þar á ferð, og verður ef Guð lofar, nýkominn til landsins á mánudaginn.

Mögulegt verður að spyrja hana út í einstök atriði og eiga samtal um hið ómetanlega starf Hjálparstarfs kirkjunnar á þeim slóðum.

Hugmyndin

Hugmyndin að baki samverunum er að fólk geti hist stutt í hádeginu, borðað saman og rætt málefni Hjálparstarfs kirkjunnar og hvernig hver og einn og hópurinn í heild sinni geti stutt við starfið.

Hjartanlega velkomin

Öll sem hafa áhuga á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Styrkja