Tveir öflugir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela þann 24. júní síðastliðinn sem höfðu gríðarleg áhrif á samfélög í norðurhluta landsins. Skjálftarnir tveir, sem voru 7,2 og 7,5 stig urðu þess valdandi að þúsundir létust eða slösuðust og gríðarleg eyðilegging blasir við, einkum í héraðinu La Guaira, höfuðborginni Caracas og víðar. Þegar þetta er skrifað er enn um 50.000 manns saknað (mat Sameinuðu þjóðanna) og því ljóst að náttúruhamfarirnar hafa enn bætt verulega á þungar birgðar venesúelsku þjóðarinnar. Hundruð þúsunda manna þurfa á mannúðaraðstoð að halda og fjölmargar fjölskyldur búa enn í bráðabirgðaskýlum eða í húsum sem hafa skemmst verulega. Aðgangur að hreinu vatni, heilbrigðisþjónustu, rafmagni og annarri grunnþjónustu hefur verið takmarkaður og miklar áhyggjur eru af afleiðingum hamfaranna á börn, eldri borgara og aðra viðkvæma hópa.
Frá fyrsta degi hjálparstarfsins í landinu hefur Lútherska heimssambandið (LWF), ásamt kirkjum og fjölmörgum staðbundnum og alþjóðlegum samstarfsaðilum, verið í fararbroddi við að veita neyðaraðstoð á hamfarasvæðunum. Starfið hefur meðal annars falist í dreifingu matvæla, hreinlætisvara, neyðarpakka, vatnshreinsibúnaðar og annarra nauðsynja til þeirra sem eiga um sárt að binda. Jafnframt hefur verið lögð mikil áhersla á sálfélagslegan stuðning, vernd barna og á að veita grunnheilbrigðisþjónustu.
Um miðjan júlí höfðu LWF og samstarfsaðilar heimssambandsins náð til yfir 5.000 einstaklinga með mataraðstoð, hreinlætispökkum, nauðsynjavörum og verndarúrræðum. Sérstök áhersla er lögð á aðstoð við börn og ungmenni sem hafa orðið fyrir áföllum vegna skjálftanna, meðal annars með skipulögðum sálfélagslegum verkefnum og öruggum rýmum þar sem hægt er að efla félagsfærni og andlega líðan þeirra.
Þrátt fyrir að margir komi að því að veita nauðstöddum þessa mikilvægu aðstoð eru þarfirnar enn gríðarlegar. Skortur á öruggu húsaskjóli, hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu er víða alvarlegt vandamál og eftirskjálftar, og miklar rigningar sem valda truflunum á fjarskipti og samgöngur, gera hjálparstarfið erfitt. Hjálparsamtök leggja því áherslu á áframhaldandi stuðning til að mæta brýnustu þörfum fólks, styrkja samfélög til endurreisnar og hjálpa fjölskyldum að byggja upp líf sitt á ný.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur um langt árabil unnið náið með ACT Alliance (Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna) og LWF. Þessi samvinna gerir Hjálparstarfinu kleift að bregðast skjótt við neyðarástandi þegar samfélög heimsins verða fyrir þungum áföllum og er það gert óháð trú, þjóðerni eða uppruna. Í því ljósi hyggst Hjálparstarfið bregðast við ákalli Act Alliance til samstarfsaðila sinna um framlag til að fjármagna björgunar- og uppbyggingarstarf í landinu. Verkefnið er hugsað til næstu tólf mánaða (til loka júní 2027) og mun Hjálparstarfið senda framlag sitt til hjálparstarfsins í Venesúela eins fljótt og verða má.
