Enid Tumushabe er 67 ára og býr í þorpinu Kitovu í Lyantonde í Úganda með þremur barnabörnum sínum sem eru sex, sjö og tíu ára. Þau eru öll í skóla en hafa aldrei getað sótt hann eins og skyldi. Ástæða þess eru skólagjöld og skólagögn sem Enid hefur ekki getað greitt fyrir. Þau bjuggu í hreysi þar sem engin aðstaða er til að matreiða og þar er heldur engin salernisaðstaða. Enid er ekkja en hún missti eiginmann sinn og öll börnin sín á fyrra æviskeiði.

Húsið sem þau hafa búið í um langt árabil heldur hvorki vatni né vindum. Þegar veður var óhagstætt, sérstaklega ef rigndi, var útilokað fyrir Enid og börnin að sofa í húsinu. Draumur Enid í þessu lífi er að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því hvaðan næsta máltíð kemur, en til þessa hefur það ætíð verið verkefni dagsins.

Nýja húsið breytir lífi fjölskyldunnar til batnaðar.

Frá árinu 2001 hefur Hjálparstarfið aðstoðað HIV smitaða, alnæmissjúka, aðstandendur þeirra og eftirlifendur upp til sveita í Úganda. Skjólstæðingar verkefnisins eru fyrst og fremst börn sem misst hafa foreldra sína af völdum alnæmis og búa ein en líka HIV smitaðir einstæðir foreldrar og ömmur sem hafa börn á framfæri og búa við sára fátækt.

Áhersla er lögð á að bæta lífsskilyrði fólksins sem býr við nístandi skort með því að reisa múrsteinshús sem eru útbúin grunnhúsbúnaði og eldaskála með hlóðum sem spara eldsneyti. Reistir eru kamrar við hlið húsanna, fólkið fær fræðslu um samband hreinlætis og smithættu og hvernig bæta má hreinlætisaðstöðu.

 

Hér getur þú lesið um starf Hjálparstarfsins erlendis. 

Vilt þú gerast Hjálparliði og veita verkefnum Hjálparstarfsins stuðning?

Styrkja