Í byrjun mars setja börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar söfnunarmiða inn um póstlúgur í íbúðarhúsum í stað þess að banka upp á með söfnunarbauk Hjálparstarfs kirkjunnar eins og venjulega. Fermingarbörnin í hverfinu þínu gefa þannig af tíma sínum og þau fá tækifæri til að láta gott af sér leiða þrátt fyrir heimsfaraldur. Bestu þakkir fyrir að taka börnunum vel ❤
Þú getur lagt þitt af mörkum í hjálparstarfi með stöku framlagi á eftirfarandi hátt:
-Þú getur lagt upphæð að eigin vali inn á styrktarreikning númer 0334-26-50886, kennitala: 450670-0499
-Þú getur hringt í söfnunarsíma 907 2003 og greitt 2500 krónur með næsta símreikningi.
-Þú getur Aurað í 123-5284400 og gefið upphæð að eigin vali til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar.
-Þú getur stutt starfið með því að greiða upphæð að eigin val með greiðslukorti hér á heimasíðu okkar
Styrkja