Í dag kom fríður hópur á skrifstofu Hjálparstarfsins færandi hendi. Það voru konur í Lionsklúbbnum Engey sem hingað koma um hver jól. Þær hittast reglulega margar saman til að prjóna. Þær gefa svo afrakstur vinnu sinnar til þeirra sem á þurfa á því að halda.

Þær segja að ekkert nema ánægjan reki þær áfram; það gefi þeim mikið að hittast og láta gott af sér leiða með þessum hætti.

Þessar fallegu prjónavörur verða hluti af jólagjöfum sem verða gefnar hjá Hjálparstarfinu núna fyrir jólin. Bestu þakkir fyrir!

Styrkja