Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 24. apríl kl. 12:00 og snæða saman. Þetta er í síðasta skiptið á þessu misseri sem vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman með þessu móti. Öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 föstudaginn 21. apríl nk. Verð fyrir máltíðina er 2.000 kr. og mun afraksturinn renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Umsjón með matseldinni hefur Kristín Hraundal kirkjuvörður.

Yfir hádegisverðinum mun Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi segja frá stöðunni á Íslandi í dag og lýsa horfunum til framtíðar, eins og þær blasa við henni. Verður áhugavert að heyra hvernig Vilborg lýsir stöðunni og framtíðarhorfunum.

Hugmyndin að baki samverunum er að fólk geti hist stutt í hádeginu, borðað saman og rætt málefni Hjálparstarfsins og hvernig hver og einn og hópurinn í heild sinni geti stutt við starfið. Hugmyndin kviknaði hjá séra Bjarna Þór Bjarnasyni og með honum í undirbúningshópnum eru Halldór Kristinn Pedersen og Erik Pálsson, auk starfsfólks Hjálparstarfs kirkjunnar og presta og starfsfólks Grensáskirkju.

Öll sem hafa áhuga á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Styrkja