Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman nú á nýju ári í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 29. janúar kl. 12:00 og snæða saman. Öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Skráning

Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 fimmtudaginn 25. janúar, þ.e.a.s. á morgun. Verð fyrir máltíðina er 3.000 kr. og mun afraksturinn renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Nýjar og áhugaverðar upplýsingar

Kristín Ólafsdóttir

Yfir hádegisverðinum mun Kristín Ólafsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna, flytja stutt erindi um mannúðaraðstoð Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna – Act Alliance, á Gasa og í Úkraínu. Mögulegt verður að spyrja hana út í einstök atriði og eiga samtal um hið ómetanlega starf Hjálparstarfs kirkjunnar á þessum ófriðarsvæðum.

Hugmyndin

Hugmyndin að baki samverunum er að fólk geti hist stutt í hádeginu, borðað saman og rætt málefni Hjálparstarfs kirkjunnar og hvernig hver og einn og hópurinn í heild sinni geti stutt við starfið.

Öll sem hafa áhuga á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Styrkja