Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman á ný í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 27. mars kl. 12:00 og snæða saman. Þetta er í fimmta sinn sem hópurinn kemur saman en öll sem áhuga hafa á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 fimmtudaginn 23. mars. Verð fyrir máltíðina er 2.000 kr. og mun afraksturinn renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Umsjón með matseldinni hefur Kristín Hraundal kirkjuvörður.

Yfir hádegisverðinum mun Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, segja frá verkefnum Hjálparstarfsins í Úganda en þegar hópurinn snæðir saman verður hann nýkominn heim úr vinnuferð til landsins.

Hugmyndin að baki samverunum er að fólk geti hist stutt í hádeginu, borðað saman og rætt málefni Hjálparstarfsins og hvernig hver og einn og hópurinn í heild sinni geti stutt við starfið. Hugmyndin kviknaði hjá séra Bjarna Þór Bjarnasyni og með honum í undirbúningshópnum eru Halldór Kristinn Pedersen og Erik Pálsson, auk starfsfólks Hjálparstarfs kirkjunnar og presta og starfsfólks Grensáskirkju.

Öll sem hafa áhuga á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.

 

Styrkja