Málþing um hjálparstarf í tilefni fimmtíu ára starfsafmælis Hjálparstarfs kirkjunnar verður á Grand Hotel, Sigtúni 38, 104 Reykjavík, fimmtudaginn 9. janúar kl. 16:30 – 18:30.

Hjálparstarf kirkjunnar fagnar fimmtíu ára starfsafmæli á árinu 2020 en formleg ákvörðun um hjálparstofnun á vegum íslensku þjóðkirkjunnar var tekin á fundi kirkjuráðs þann 9. janúar 1970. Hjálparstarfið hefur frá stofnun haft það hlutverk að veita fólki sem býr við sára fátækt neyðaraðstoð, hver svo sem orsök neyðarinnar er. Aðstoðin er veitt þannig að hún sé valdeflandi, – að hún sé raunveruleg hjálp til sjálfshjálpar. Markhópar Hjálparstarfsins hvort sem er í verkefnum hér á Íslandi, á átaka- eða náttúruhamfarasvæðum eða í þróunarsamvinnuverkefnum í einna fátækustu samfélögum heims er fólkið sem býr við erfiðustu aðstæðurnar og getur síst veitt sér björg upp á eigin spýtur. Á málþinginu á afmælisdaginn sjálfan, þann 9. janúar 2020, ætlum við að fjalla um valdeflingu kvenna og leitast við að svara því hvort sú aðferð sé aðeins frasi í hjálparstarfi eða hvort hún leiði til raunverulegra framfara í samfélögum þar sem henni er beitt.

Frú Eliza Jean Reid, forsetafrú, og Magnús Árni Skjöld Magnússon, forseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Bifröst, flytja erindi en þau eru bæði virk í baráttunni fyrir kynjajafnrétti. Þá segir Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, frá þróunarsamvinnu í Eþíópíu og Úganda og félagsráðgjafarnir Sædís Arnardóttir og Vilborg Oddsdóttir fjalla um virkniverkefni Hjálparstarfsins hér heima á Íslandi. Þá munu þátttakendur í verkefnum fjalla um reynslu sína af þeim. Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands og verndari stofnunarinnar, flytur ávarp í upphafi málþings. Allir velkomnir!

Styrkja