Ólaf­ur G. Ein­ars­son, fyrr­ver­andi alþing­ismaður og ráðherra, lést á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sól­túni í gær, níræður að aldri. Ólaf­ur var formaður stjórnar Hjálp­ar­starfs kirkj­unn­ar á árunum 1998–2000.

Ólaf­ur fædd­ist á Sigluf­irði 7. júlí 1932 og ólst þar upp. For­eldr­ar hans voru Ein­ar Kristjáns­son (1898-1960) for­stjóri og Ólöf Ísaks­dótt­ir (1900-1987) hús­móðir. Hann lauk stúd­ents­prófi frá MA 1953, stundaði nám í lækn­is­fræði 1953–1955 og lauk lög­fræðiprófi frá HÍ 1960.

Ólafur G. Einarsson

Hann var sveit­ar­stjóri í Garðahreppi 1960–1972, odd­viti hrepps­nefnd­ar 1972–1975 og for­seti bæj­ar­stjórn­ar 1976–1978. Ólaf­ur var kos­inn alþing­ismaður fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn 1971 og sat á þingi til 1999. Hann var formaður þing­flokks Sjálf­stæðis­flokks­ins 1979–1991, mennta­málaráðherra 1991–1995 og for­seti Alþing­is 1995–1999.

Ólaf­ur sat í miðstjórn Sjálf­stæðis­flokks­ins 1969–1971 og 1980–1991 og í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins 1981–1991. Hann var formaður Þing­valla­nefnd­ar 1988–1991, vara­formaður Íslands­deild­ar Norður­landaráðs 1983–1986 og formaður 1986–1991. Hann sat í bankaráði Seðlabanka Íslands 1998–2007 og var formaður þess 2001–2006. Ólafur var formaður orðunefnd­ar 2003–2010. Hann var út­nefnd­ur heiðurs­borg­ari Garðabæj­ar árið 2010.

Kona Ólafs var Ragna Bjarna­dótt­ir, f. 21.11. 1931, d. 20.1. 2015. Þau giftu sig á aðfanga­dag 1955 í Ak­ur­eyr­ar­kirkju. Ragna var hús­móðir en vann áður á Raf­orku­mála­skrif­stof­unni, síðar á skatt­stofu Reykja­ness og bóka­safni Garðabæj­ar. Dótt­ir þeirra var Ásta Ragn­hild­ur, f. 17.1. 1968 en hún lést 15.1.2021. Eft­ir­lif­andi eig­inmaður Ástu er Þröst­ur Sig­urðsson, f. 7.3. 1966. Þau eignuðust þrjá syni: Ólaf Þór, Fann­ar Stein og Vikt­or Inga.

Heimild: Morgunblaðið

 

Styrkja