Í Úganda er Hjálparstarf kirkjunnar í samstarfi við samtökin Ugandan Youth Development Link, UYDEL, sem hafa áratuga reynslu af því að vinna með ungu fólki í fátækrahverfum höfuðborgarinnar Kampala og eru leiðandi í baráttunni gegn mansali og barnaþrælkun í landinu.

 

Hárgreiðslunám er afar vinsælt í smiðjum UYDEL og krakkar af báðum kynjum sækja sér þessarar menntunar. Mörg þeirra ætla sér að stofna sín eigin fyrirtæki þegar námi sleppir. Mynd/Hjálparstarfið.

Í höfuðborginni reka samtökin smiðjur fyrir börn og ungmenni á aldrinum 13-24 ára og fjármagnar Hjálparstarf kirkjunnar starfið í þremur þeirra. Í smiðjunum þremur stunda um 500 unglingar nám ár hvert. Markmiðið er að unga fólkið öðlist verkkunnáttu sem það getur nýtt til að sjá sér farborða, að það taki þátt í uppbyggilegum tómstundum og námskeiðum sem styrkja sjálfsmyndina og að þau séu upplýst um kynheilbrigði og rétt sinn til heilbrigðisþjónustu.

 

Klæðskurður og saumaskapur hvers konar eru kunnátta sem er gulls ígildi fyrir krakkana í Kampala. Að eiga sína eigin saumavél er ávísun á vinnu og betra líf. Mynd/Hjálparstarfið

Í smiðjunum geta unglingarnir valið sér ýmis svið og öðlast nægilega færni til að verða gjaldgeng á vinnumarkaði svo sem við hárgreiðslu, matreiðslu, rafvirkjun, saumaskap og sápugerð. Einnig eru á dagskrá dans, leik- og sönglist og íþróttir. Mikið er lagt upp úr því að styrkja sjálfsmynd unglinganna sem koma úr ömurlegum aðstæðum í fátækrahverfunum.

 

Í smiðjum UYDEL er ekki aðeins starfsnám heldur er mikil áhersla lögð á íþróttir, dans og aðrar tómstundir. Slík iðja liðkar fyrir námi, ekki síst hjá drengjum sem oft byrja í íþróttastarfi en leita sér síðar frekari þjálfunar í iðngrein. Mynd/Hjálparstarfið

 

Úganda er númer 166 af 191 ríkjum á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2023 en Ísland er þar númer þrjú. Listinn mælir lífskjör út frá lífslíkum, menntun, tekjum og jöfnuði. Í Úganda búa um 49 milljónir íbúa en helmingur þeirra er yngri en 16 ára gamall.  Ungt fólk sem ekki hefur fengið tækifæri til skólagöngu flýr gjarnan fátæktina í sveitinni og heldur til höfuðborgarinnar í von um betra líf. Flestra bíður hins vegar lélegt skjól og ill meðferð í fátækrahverfi þar sem neyðin rekur þau til að taka þátt í glæpagengjum eða selja líkama sinn til að geta séð sér farborða. Börn og unglingar í höfuðborginni eru útsett fyrir misnotkun af ýmsu tagi og þau verða auðveldlega fíkniefnum að bráð.

Aðstæður ungs fólks í fátækrahverfum Kampala

  • Ekkert rennandi vatn, engin sorphirða, engar almenningssamgöngur
  • Húsin eru kofaskrifli sem varla halda vatni og vindum
  • Stundum flæðir regnvatnið inn í kofana og með því skólp og sorp
  • Salerni eru vandfundin
  • Stundum er hægt að stelast í rafmagn og kveikja ljós
  • Oftast er enginn skóli vegna peningaleysis
  • Stundum selja ungmenni líkama sinn til að sjá fyrir sér og brauðfæða systkinin
  • Örvænting ungmenna veldur því að mörg þeirra ganga til fylgilags við glæpagengi
  • Þetta eru aðstæður sem skjólstæðingar Hjálparstarfsins í höfuðborg Úganda búa við, nauðugir viljugir.
Styrkja