Nýtt Fréttabréf Hjálparstarfsins er komið út. Í blaðinu segjum við frá starfinu hér heima og á verkefnasvæðum erlendis.

Í blaðinu er meðal annars fjallað jólaaðstoð Hjálparstarfsins en sjaldan hafa eins margir leitað til okkar og nú. Ástæðan er einföld og ávallt sú sama. Þau sem minnst hafa handa á milli þurfa aðstoð við að útvega börnum sínum það sem öll börn þurfa um jólin.

Skjólið, dagsetur Hjálparstarfsins fyrir heimilislausar konur, varð á dögunum fimm ára. Sagt er frá því merkilega starfi sem þar er unnið.

Svo segjum við frá þróunarsamvinnuverkefnum í Eþíópíu og Úganda, svo fátt eitt sé nefnt.

Ef þú vilt lesa um innlent sem erlent starf Hjálparstarfsins má finna fréttabréfið hér.

 

Styrkja