Frá árinu 2017 hefur Hjálparstarf kirkjunnar rekið þrjár verkmenntasmiðjur fyrir ungt fólk í fátækrahverfum Kampala, höfuðborg Úganda, með innlendu hjálparsamtökunum Ugandan Youth Development Link, UYDEL. Eftir ársnám í smiðjunum getur unga fólkið flest fundið sér atvinnu og séð fyrir sér á sómasamlegan hátt.

Að fyrirmælum stjórnvalda í Úganda hefur smiðjunum verið lokað tímabundið vegna Covid-19 heimsfaraldursins en starfsfólk UYDEL tekur þátt í aðgerðum sem miða að því að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í borginni ásamt því að bregðast við afleiðingum faraldursins; bráðum skorti á matvælum og öðrum nauðsynjum. Höfuðáhersla er lögð á að koma matvælum, sápu og upplýsingum um faraldurinn til fólksins í fátækrahverfunum.

Stjórnvöld í Úganda ákváðu að koma mjólkurdufti, sykri, maísmjöli og baunum fyrst til sjúklinga, fólks með fötlun og munaðarlausra sem dvelja í 134 stofnunum í höfuðborginni og á landsvísu. UYDEL hefur tekið þátt í neyðaraðstoðinni frá byrjun apríl með því að lána tvo pallbíla og starfsfólk til matvæladreifingarinnar sem hefur nú náð til hátt í milljón íbúa. Óttast er að smitum eigi eftir að fjölga mikið í Úganda en þann 24. apríl voru 74 staðfest smit skráð á vefsíðu heilbriðgðisyfirvalda í landinu.

Anna Kavuma, yfirfélagsráðgjafi UYDEL, segir að unga fólkið í fátækrahverfunum sé ekki nægilega meðvitað um forvarnir og að hreinlætisaðstaða sé af mjög skornum skammti í hverfunum líka. Anna segir stöðuna mjög slæma í samkomubanni. “Unga fólkið sem hefur fengið greitt fyrir vinnu sína frá degi til dags á nú ekki fyrir mat, hvað þá fyrir sápu eða handspritti,” segir Anna og bætir við að aðgengi að vatni sé líka mjög takmarkað. “Við erum að koma upp handþvottasvæðum með vatnsfötum, sápu og handspritti í hverfunum og við höfum fengið ungt fólk til að sauma andlitsgrímur líka,” segir Anna.

“Við óttumst að ein afleiðing faraldursins verði aukið ofbeldi í fátækrahverfunum þar sem örvæntingin grípur um sig,” segir Anna og bætir við að UYDEL sé nú í samstarfi við önnur hjálparsamtök um að koma matvælum til fólksins í fátækrahverfunum á meðan faraldurinn geisar en talið er að hann muni ganga yfir í Úganda á þremur mánuðum.

UYDEL óttast að aðstæður fólksins í fátækrahverfunum í Kampala eigi eftir að versna til muna á meðan faraldurinn gengur yfir og að efnahagslegra áhrifa muni gæta mun lengur. Samtökin segja að fjölskyldurnar muni ekki lengur hafa ráð á að senda börnin í skólann og að með aukinni örbirgð verði unglingsstúlkur enn líklegri til að verða fyrir misnotkun og kynferðislegu ofbeldi. Samtökin hafa þegar hafið átak í hverfunum þar sem varað er við þessari hættu og fólk hvatt til samstöðu á erfiðum tímum.

Hjálparstarf kirkjunnar heldur áfram að styrkja öflugt starf UYDEL í fátækrahverfum Kampala og gerir það með stuðningi frá hjartahlýju fólki á Íslandi.

Vilt þú hjálpa?

Nánar um smiðjur Hjálparstarfs kirkjunnar og UYDEL

Styrkja