Fátt finnst okkur skemmtilegra hérna í Hjálparstarfinu en þegar við fáum góða gesti. Hún Arna Bára Arnarsdóttir fellur svo sannarlega í þann flokk en hún kom með báðar hendur fullar í morgun af prjónlesi frá hópi kvenna í Mosfellsbæ.

Prjónakaffi Lágafellssóknar, kallar hópurinn sig, en þær hittast aðra hvora viku og prjóna peysur, húfur, sokka og vettlinga. Allt gáfu þær svo Hjálparstarfinu og fatnaðurinn kemur sér svo sannarlega vel um þessar mundir.

Þetta hefur hópurinn, sem telur hátt í 20 konur, gert í mörg undanfarin ár og Hjálparstarfið hefur notið þess ríkulega. Þær prjóna fyrir góð málefni; vilja láta gott af sér leiða og njóta samvista um leið.

Styrkja