Hjálparstarf kirkjunnar fagnar og tekur undir ákall utanríkisráðherra Íslands, Írlands, Lúxemborgar, Noregs, Slóveníu og Spánar um að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum um að víkka út hernaðaraðgerðir sínar á Gaza og hafa þar varanlega viðveru. Utanríkisráðherrar þessara ríkja hafna öllum hugmyndum um brottflutning Palestínumanna frá Gaza enda væru þær brot á alþjóðalögum. Þá kalla ráðherrarnir eftir nýju vopnahléi á Gaza og lausn allra gísla og fara fram á að Ísraelar heimili þegar í stað að matar- og neyðaraðstoð berist aftur inn á Gaza í samstarfi við og fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna og hjálparstofnana.
Yfirlýsinguna í heild má lesa hér.