Börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar ganga í hús um land allt dagana 31. október – 3. nóvember með bauk frá Hjálparstarfi kirkjunnar sem er merktur, númeraður og lokaður með innsigli. Börnin gefa þannig af tíma sínum til að safna fé til verkefna Hjálparstarfsins í Afríku. Kærar þakkir fyrir að taka vel á móti börnunum!

Meðal þess sem börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar fá að kynnast í vetur er þróunarsamvinna og hjálparstarf á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Fermingarbörnin fá að kynnast aðstæðum sem fólkið á verkefnasvæðum býr við og rætt er um sameiginlega ábyrgð á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi.

Í kjölfar fræðslunnar ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefna sem kynnt hafa verið. Fyrir söfnunina fá börnin leiðbeiningar um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Börnunum er uppálagt að fara alltaf  tvö og tvö saman og foreldrar eru hvattir til að ganga með þeim. Börnin fá endurskinsmerki merkt Hjálparstarfi kirkjunnar til að bera á meðan fjáröflun stendur.

„Með verkefninu gefist tækifæri til að fræða fermingarbörnin um gildi náungakærleiks á áþreifanlegan hátt. Með því skapast einnig mótvægi við síbylju neikvæðra frétta og tækifæri til að skynja að öll getum við lagt eitthvað af mörkum,“ sagði Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri kirkjunnar, við undirbúning söfnunarinnar.

Börn í fermingarfræðslu hafa í meira en tuttugu ár lagt sitt af mörkum til Hjálparstarfs með því að ganga í hús með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Framlag fermingarbarna er afar mikilvægt en árið 2021 söfnuðu þau rúmum 8 milljónum króna með þessum hætti.

Styðja má fjáröflun fermingarbarna til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku með því að hringja í söfnunarsíma 907 2003 og gefa 2.500 krónur, leggja upphæð að eigin vali inn á reikning 0334-26-56200, kennitala 450670-0499 eða greiða með greiðslukorti hér.

Styrkja