Í dag komu konur frá Lionsklúbbnum Engey á skrifstofu Hjálparstarfsins færandi hendi. Þetta má kalla árlega heimsókn auðfúsugesta því Engeyjarkonur hafa heimsótt Hjálparstarfið í upphafi aðventu í rúman áratug.
Engeyjarkonur hittast reglulega og prjóna saman og gefa svo afrakstur vinnu sinnar til þeirra sem þurfa á því að halda. Prjónaðar gjafir þeirra munu fylla á annað hundrað jólapakka þessi jólin.
Þær segja að ekkert nema ánægjan reki þær áfram; það gefi þeim mikið að hittast og láta gott af sér leiða með þessum hætti.

Þessar fallegu prjónavörur verða hluti af jólagjöfum sem verða gefnar hjá Hjálparstarfinu núna fyrir jólin. Það er öruggt að það verða margir sem verða brosandi út að eyrum og verður hlýrra, vegna þessara gjafa Engeyjarkvenna.
Prjónakonurnar færðu Hjálparstarfinu ekki einungis prjónles. Ákváðu þær að 200.000 krónur, sem er afrakstur söfnunarstarfs þeirra, gengi til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins sem mun koma sér afar vel á næstu vikum þegar fjölskyldur sem búa við fátækt leitar aðstoðar vegna jólahaldsins.

