Hjálparstarf kirkjunnar leggur áherslu á sjálfstæði fólks og rétt þeirra til að velja. Þess vegna gefum við ekki páskaegg sem við kaupum, heldur gefum við fjölskyldum inneignarkort í matvöruverslanir. Þannig fá börnin að velja sitt eigið páskaegg.
Það er margt skemmtilegt sem fylgir páskunum: góður matur, notalegar samverustundir og að sjálfsögðu páskaeggjaleitin á páskadagsmorgun. Því miður eru mörg börn á Íslandi sem fá ekki páskaegg. Ekki af því að þau eru svo vel falin, heldur vegna þess að foreldrar þeirra hafa ekki efni á þeim.
En þú getur hjálpað okkur að breyta því!
Nú um páskana stendur Hjálparstarf kirkjunnar fyrir söfnunarátaki, bæði með skemmtilegum leikjum á samfélagsmiðlum og valgreiðslusöfnun. Með þinni þátttöku styður þú við fjölskyldur sem búa við fátækt og gerir þeim kleift að gera sér dagamun yfir páskana, þ. á m. að kaupa páskaegg fyrir börnin sín.
