Bræðrastúka nr. 18, sem ber heitið Ari fróði, færði í dag Hjálparstarfi kirkjunnar 750.000 krónur að gjöf til styrktar innlendu starfi samtakanna.
Þeir Skafti Ingi Stefánsson, yfirmeistari, Ómar Sveinsson ritari og Sigurjón Alfreðsson, formaður líknarsjóðs, komu færandi hendi á skrifstofu Hjálparstarfsins þar sem Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri tók á móti þessu höfðinglega framlagi til starfsins.
Gjafir sem þessar skipta Hjálparstarfið afar miklu máli enda rík áhersla lögð á að aðstoða fjölskyldufólk sem býr við kröpp kjör fyrir jólin svo það geti gert sér dagamun yfir hátíðirnar.
Á afhendingarskjali kemur fram að styrkurinn er veittur úr líknarsjóði stúkunnar Ara fróða til stuðnings fátæku og þurfandi fólki. Undir skjalið skrifa Skafti Ingi Stefánsson, yfirmeistari, og Ómar Sveinsson, ritari.
Hér má lesa allt um innanlandsstarf Hjálparstarfs kirkjunnar.
Vilt þú styrkja hjálparstarfið? Með því að gerast Hjálparliði hjálpar þú fólki sem býr við fátækt á Íslandi og í fátækustu samfélögum heims.
