Borgarastríðið í Súdan hefur nú geysað í vel á þriðja ár. Margir tala um „gleymda stríðið“ en staða almennra borgara í Súdan er skelfileg og hungursneyð milljóna staðreynd.
Hörð átök milli súdanska stjórnarhersins (SAF) og sveita uppreisnarhersins Rapid Support Forces (RSF) hafa nú varað í Súdan í á þriðja ár. Átökin eiga rætur sínar að rekja til valdabaráttu tveggja hershöfðingja sem stóðu sameiginlega að valdaráni í landinu árið 2019 þegar fyrrverandi forseta landsins var steypt af stóli en hann hafði þá setið í embætti í tæpa þrjá áratugi. Herstjórn hershöfðingjanna tveggja tók við en spenna þeirra á milli hafði farið stigvaxandi þar sem þeir deildu um innleiðingu nýs stjórnarfars í landinu og aðlögun RSF sveitanna að stjórnarhernum.
Frá því átökin hófust í apríl 2023 hafa tugir þúsunda fallið eða særst. Enginn treystir sér til að meta fórnirnar með nokkurri nákvæmni en líklega hafa allt að 150.000 almennir borgarar verið drepnir. Nú þegar átökin hafa staðið svo lengi sem raun ber vitni er sú staða komin upp að hungursneyð hefur geisað í landinu um langt skeið og versnar dag hvern. Talið er að 25 milljónir Súdana búi við alvarlegan næringarskort og fjölmargir deyja hungurdauða dag hvern. Þess utan hafa að talið er níu milljónir íbúa landsins neyðst til að yfirgefa heimkynni sín og eru á vergangi innan Súdan en 3,5 milljón manns til viðbótar hafa flúið heimaland sitt; til Mið-Afríkulýðveldisins, Chad, Egyptalands, Suður-Súdan og Eþíópíu. Allt þetta fólk er í brýnni þörf fyrir aðstoð hvort sem það hefst við innanlands eða í yfirfullum flóttamannabúðum í nágrannaríkjum.
Til að bæta gráu ofan á svart þá hafa síðustu mánuði ársins 2025 borist fréttir af hroðalegum grimmdarverkum og níðingsskap stríðandi fylkinga. Í frétt Rúv segir að „Nauðganir í hernaði þessara sveita hefur orðið einkenni þeirra. Konum á öllum aldri, ungum stúlkum og, í mörgum tilfellum, kornabörnum, er skipulega nauðgað á hrottafenginn hátt í þeim þorpum og bæjum sem hermenn hafa sölsað undir sig síðustu misseri. Mannúðarsamtök lýsa því í skýrslum sínum, að sjá megi RSF-hermenn fremja fjöldarmorð á almennum borgurum í Darfúr í myndskeiðum sem deilt er á samfélagsmiðlum. Samtök eins og Mannréttindavaktin hafa staðfest að þetta eigi sér reglulega stað, til dæmis í héraðshöfuðborginni el-Fasher.“

Þar sem hjálparstarf er mögulegt hefur fólk fengið reiðufé fyrir nauðþurftum og því útvegað vatn og hreinlætisaðstaða. Mynd/NCA
Hjálparstarf kirkjunnar í Noregi, NCA, biðlaði í lok ágúst 2024 til systurstofnana í Alþjóðlegu Hjálparstarfi kirkna, ACT Alliance um fjárframlag til þess að geta sett aukinn kraft í mannúðaraðstoð í Súdan en helmingur þjóðarinnar, þá um 25 milljónir íbúa, bjó við skelfilegar aðstæður.
Frá 1. september 2024 til 31. ágúst 2025 áætlaði NCA að vinna með Caritas Internationalis og innlendum hjálparsamtökum í Súdan að því að veita mannúðaraðstoð til tæplega 100.000 einstaklinga, jafnt fólks á flótta undan stríðandi fylklingum sem íbúa í samfélögum sem taka á móti flóttafólkinu. Tímarammi verkefnisins hefur hins vegar breyst. Hjálparstarf hefur víða gengið erfiðlega eða verið útilokað vegna ófriðarins og mun því teygja sig yfir á nýtt ár.
Þar sem hjálparstarf hefur verið mögulegt hingað til hefur fólk fengið reiðufé fyrir nauðþurftum og því útvegað vatn og hreinlætisaðstaða. Þá er sérstaklega hugað að því að konur og stúlkur verði ekki fyrir kynbundnu ofbeldi og sálrænn stuðningur veittur börnum og fullorðnum.
NCA bað systurstofnanir í ACT Alliance um 2,2 milljónir evra til að veita aðstoðina. Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi lagði til 104.000 evrur (16 milljónir íslenskra króna) til mannúðaraðstoðarinnar eða um 5% af umbeðinni fjárhæð. Fimmtán milljónir komu frá utanríkisráðuneytinu vegna verkefnisins en Hjálparstarfið lagði til um eina milljón króna af söfnunarfé.

Ungur drengur á heimleið eftir að hafa tryggst sér og fjölskyldu sinni nauðsynjar. Mynd/NCA
